Ketilvallakirkja

Ketilvallakirkja

Bishop Gissur, who was the second bishop at Skálholt, had a church raised at Ketilvellir in Laugardalur in Árnessýsla, and it stood there for a long time. The ruins of the churchyard can still be seen there. Later, the church was moved to Miðdalur, and there it has been since. The people of Laugardalur tell this story about the moving of the church.

East of the farm in Miðdalur in Laugardalur, there is a certain ravine with dark gorges up in the mountain. A giantess lived there in a cave in the gorge, and every Christmas night she abducted the most promising man in Laugardalur. The people of Laugardalur reported this trouble of theirs to the bishop at Skálholt, and he advised them to move the church as close as possible to the ravine, and ring the bells continuously throughout the entire Christmas night. This was then done, and the monster was frightened away from the gorge.

Some say that the giantess moved from the ravine north onto the mountains into that pass which is now called Klukkuskarð. But then bells were moved into the pass, and the giantess was frightened away from there again by the ringing. From this the pass has since drawn its name. Klukkuskarð is on the path that lies from Laugardalur north to Skjaldbreiður.

 

Learn more

Complete guide to Icelandic pronunciation

Daily expression in Iceland

Online course from DSGN

Icelandic grammar lessons for all

 

Original text

(Eptir sögn skólapilta að austan 1847.)

Gissur biskup, sá er annar var biskup í Skálholti, lèt reisa kirkju á Ketilvöllum í Laugardal í Árnesssýslu, og stóð hún þar leingi. Sèr þar enn til kirkjugarðsrústarinnar. Seinna var kirkjan flutt að Miðdal, og þar hefir hún síðan verið. Laugdælir segja þessa sögn um kirkjuflutnínginn.

Fyrir austan bæinn í Miðdal í Laugardal er gil eitt með dimmum gljúfrum í uppi í fjallinu. Þar bjó gýgur ein í helli í gljúfrinu, og nam hún burtu á hverri jólanótt efnilegasta manninn í Laugardalnum. Báru Laugdælir upp þessi vandræði sín við biskupinn í Skálholti, en hann rèð þeim til að flytja kirkjuna sem næst gilinu, og hríngja í sífellu allar jólanætur í gegn. Þetta var nú gjört, og fældist þá óvætturin burtu úr gljúfrinu.

Sumir segja, að gýgurin hafi flutt sig úr gilinu norður á fjöllin í skarð það, sem nú heitir Klukkuskarð. En þá voru fluttar klukkur í skarðið, og gýgurin fæld aptur burtu þaðan með hríngíngum. Af því dregur skarðið síðan nafnið. Klukkuskarð er á vegi þeim, sem liggur úr Laugardalnum norður að Skjaldbreið.

Back